Færslur: 2012 Janúar
29.01.2012 19:32
Gleðilegt ár!
Þegar janúar er að renna sitt skeið er ekki seinna vænna að óska öllum gleðilegs árs! Og tilkynna að ég sé ekki dauð enn, fjarri því! Það er frekar að ég gefi mér ekki tíma til að álpast hérna inn. Hins vegar er fólk enn að spyrja um kanínur og tengd mál þannig að e-r kíkja nú hérna inn enn í leit að upplýsingum. Ég á hins vegar ekki nein dýr sem ég tími að láta eins og er, alveg búin að selja inn að beini og ég lét meira að segja Snædísi gömlu fyrir jólin enda átti ég þá einn flottan gráan karl sem tók svo bara upp á því að drepast í blóma lífsins rétt eins árs gamall! Langt síðan ég hef lent í því og sá mikið eftir honum Ævari.
Tvo litaða bræður á ég samt undan Þulu Ýmis og Árbakka Bugðu dóttur og hún er mikið stórveldi, og ég er að hugsa um að reyna að láta hana eiga hvítt got núna bráðlega. Synir hennar 2, Ari og Alli sem ég á eru þó aðeins þóf-gjarnir sýnist mér, en óskaplega spakir og skemmtilegir og fá iðulega að skiptast á að hlaupa um gólfin hérna og stundum hlýða þeir kalli.
Við erum semsagt komin í stafinn A: Hér er hann Alli með svarta hausinn sinn, ég vil endilega reyna að halda í þennan lit.
Svo áskotnuðust mér 2 flottir gaurar frá henni Lilju á Árbakka þar sem það voru hennar síðustu dýr og hún ætlar að taka sér pásu í þessari ræktun. Það eru þeir Brynjar grár og Bósi hvítur sem eru síðan sumarið 2011 og svona e-ð skyldir sumum af mínum kanínum en ekki mjög alvarlega.
Hér er ein mynd að nýja prinsinum okkar honum Orra ásamt gamla kettinum okkar honum Léttfeta 12 ára. Orri er þarna 2-3ja mánaða minnir mig.
- 1
