Vilt þú fá þér loðkanínu?

Hér eru nokkur einföld atriði sem þarf að hafa í huga ef þig langar í loðkanínu:

Loðkanínur hafa það best í útihúsum eða í köldum bílskúrum. Þær þola ekki að vera sem gæludýr inni í íbúðarhúsum vegna hita. Þeirra kjörhiti  er svona 10-15 gráður þó svo þær þoli mikinn kulda og jafnvel frost. Þó svo er ágæt regla að halda húsum þeirra frostlausum svo ekki frjósi hjá þeim vatnið.

Þær þarf að klippa á 90 daga fresti, ef það dregst á ullin það til að verða flókin og þæfð, kanínunni verður heitt, líður illa og hún missir matarlyst.

Kanínu ull er aðeins nýtt til handverks á Íslandi, þeir aðilar sem eiga slíkar kanínur vinna flestir úr henni sjálfir. Því miður er enginn ákveðinn aðili sem tekur við allri ull sem framleidd er, en að sjálfsögðu er hægt að leita samstarfs við handverksfólk sem lagið er við að spinna á rokk, eða þæfa.

Þær eru mjög blíðar í skapi, spakar og rólegar og sjaldnast grimmar. Þær eru álíka þungar og stórar og Rex, þó svo þær séu nokkuð misjafnar frá 3-5kg myndi ég halda.

Búr geta verið alls konar, netbúr, með heilum botni eða stíur með taði, þetta hefur allt sína kosti og ókosti. Bara björt, rúmgóð og halda þeim þurrum!

Það hentar þeim ekki að búa úti í kassa eins og sumar villikanínur geta þó vel. Raki þæfir ullina fljótt, þær grafa og róta eins og aðrar og það fer alveg með ullina líka. Mikill hiti og sól hentar þeim ekki heldur. Þannig að þó svo að þær hafi mjög gaman af því að vera úti á góðum dögum að sumri, verður að passa að þær komist í skugga og vatn.

Loðkanínur þurfa að fá korn sem framleitt er af Fóðurblöndunni, sérstaklega ætlað loðkanínum þar sem þær eyða miklu púðri í að framleiða alla ullina og þurfa því sterkara fóður en er gott fyrir "venjulegar" kanínur. 25kg poki kostar tæpan 5000 kall, og þær þurfa að fá svona einn bolla á dag. Þær deyja ekki án þess, en verða minni, léttari og gefa minna af sér greyin.

Að öðru leiti borða þær gras, fersk og hey, þurrt eða rúlluhey er í lagi. Þær eru rosa kátar að fá allskonar afganga úr eldhúsinu; ávexti, hýði, soðnar kartöflur, sætar kartöflur, nefndu það bara, allt nema soðnar rófur sem fara víst illa í maga þeirra, geta gerjast. Yfirleitt er það þó þannig að það sem þær vilja éta er þeim óhætt að éta. Eins hafa þær gaman af að naga trágreinar, víði og birki, og ekki verra ef á þeim eru laufblöð. Engar snöggar fóðurbreytingar eiga við hér eins og hjá öðrum kanínum!

Ég á yfirleitt alltaf einhver dýr til sölu, hef selt þær sem eru undir eins árs á það sama og aðrar stórar kanínur, 5000 kall. Ef þú vilt fá mjög margar er jú yfirleitt hægt að framleiða fleiri, sérstaklega svona á bjartari árstímanum! Vona að þetta svari spurningum þínum svona í fyrstu umferð, svo er alltaf hægt að kíkja í heimsókn.
Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 24
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 41364
Samtals gestir: 15375
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:42:24